Húrra húrra húrra!!!
Miðvikudagur, 9. apríl 2008
Frábært að allt skuli ganga sem skildi á Kárahnjúkum. Þó svo að verkum þar sé engan veginn lokið þá virðist fréttflutningi eitthvað hafa dalað, enda mótmælin minnkað þannig að það er kannski ekkert merkilegt að segja frá að mati fréttasnápa??
En mér lýst vel á að það sé allt að gerast á Hnjúkunum þetta á eftir að vera stórkostlegur ferðamannastaður í framtíðinni, eitthvað sem maður rennir og skoðar á sunnudegi. Ekki amalegt að komast á malbikuðu upp á hálendið
Risaborar ljúka verki sínu við Kárahnjúka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svona er bara lífið!!
Þriðjudagur, 8. apríl 2008
Þessa setningu notar lítill vinur minn óspart við öll tækifæri og á hún svo sannarlega oft við.
Nú þegar lítið er að frétta lendi ég oft að skoða eitthvað miður áhugavert en samt...
eins og þetta
BOGMAÐUR og BOGMAÐUR
Getur eitthvað komið í veg fyrir að þessar bjartsýnu og lífsglöðu félagsverur finni hvorn annan? Ja, það væri þá ekki nema hreinskilnin sem Bogmaðurinn er svo hreykinn af - hún kemur oft illa við aðra og það á einnig við um aðra Bogmenn! En þeir eru óneitanlega hrifnir hvor af öðrum og sambandið verður aldrei dauflegt eða tilbreytingarsnautt.
Já þetta á sennilega að segja mér hvernig við Daði eigum saman!!! En þeir sem þekkja okkur eitthvað vita sennilega hvað bið erum ansi ólík á köflum, ég verð til dæmis ekki vör við það hann sé svona hreinskilinn eins og ég get verið. Stundum kemur hreinskilnin mér reyndar í koll en þeir sem þekkja mig fyrirgefa mér hana oftast. ;)
Annars var hann ansi hreint hreinskilinn um helgina þegar við vorum að fara út að borða með Tréborg og ég var komin í gallabuxur og bláa síða peysu, þegar hann sagði svo smekklega..."áttu enga aðra peysu til að fara í". Þetta vakti ekki mikla kátínu hjá mér eins og þið sennilega getið ímyndað ykkur
En, takk fyrir þetta tilgangslausa blogg.
Pabbi er í heimsókn, ætla að fara að leika við hann og Sesar!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvolpurinn kominn hús
Laugardagur, 5. apríl 2008
Jæja þá er hvolpurinn búin að skæla eina nótt. Búinn að pissa út um allt og við að verða búin að venja hann af því. Hann er ósköp sætur og hefur fengið nafnið Sesar, það eru myndir af honum í albúminu og eitt myndband ;) kíkið endilega á hann!!
kv. Þórey-hvolpamamma, nei ég held bara Þórey
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hver ósköpin ganga eiginlega á!!
Mánudagur, 31. mars 2008
Þið sáuð kannski samtal Ágústar Ólafs varaformanns Samfylkingarinnar og Guðna Ágústsonar formanns framsóknarflokksins í Kastljósinu fyrr í kvöld. Þar setur Guðni fram góðar tillögur sem myndu hjálpa fólkinu í landi, það kemur ekki svo mikið við peningabuddu almúgans þó að gengi krónunnar hækki um nokkur stig eða hlutabréfamarkaðurinn nái sér aftur á strik. Það gerir það kannski með tímanum, en spurningin er hvað á að gera núna. Framsóknarmenn vilja lækka gjöld af olíu og bensíni og bara það eitt mynda rétta úr kút íslenskrar meðalfjölskyldu svo um munar. Einnig vilja framsóknarmenn afnema matarskatta og að stimpilgjöld verði afnumin nú þegar. Fréttamaðurinn kemur réttilega inn á það að sitthvað af því sem Guðni nefnir sé í stjórnarsáttmálanum en hvernig væri þá fyrir þessa blessuðu ríkisstjórn að reyna að gera eitthvað af því sem kemur fram í þessum stjórnarsáttmála, það þýðir ekkert að vísa endalaust í eitthvað plagg, jahh ekki nema fólk eigi að éta stjórnarsáttmálann í bland við niðursuðuvörurnar og Cheeriosið.
Ágúst Ólafur kemur inn á það líkt og formaður samfylkingarinnar um helgina að lækka eigi innflutningsskatta á hvítu kjöti. Þetta kemur verulega illa við svína og kjúklingabændur hérlendis og segja þeir að þetta geti orðið til þess að þeir þurfi að bregða búi. Ágúst Ólafur segir reyndar svo skemmtilega í viðtalinu og lýsir það ákveðinni fyrirlitningu og einhverskonar borgarpólitík að hagkerfið sé að vernda 2 kjúklingabændur og 16 svínabændur, við erum ekki að hafa neinn hag að því segir hann. Hann íslensk heimili blæða fyrir það að skjaldborg sé slegið utan um dýran landbúnað sem þennan. Ég get nú bara talað fyrir mitt leyti en ég get ekki séð að það sé verðið á kjúklingunum eða svínakjötinu sem er að draga íslenskuþjóðina til dauða á þessum síðustu og verstu tímum. En ef að skattar verða afnumdir þá mun ríkisstjórninni sennilega takast að draga að minnsta kosti þessar 18 fjölskyldur sem hafa beinan hag sinn af kjúklinga- og svínarækt.
Hvað er eiginlega að gerast hérna!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Áfram Framsókn!
Föstudagur, 28. mars 2008
Þetta lýst mér vel á! Það er nauðsynlegt að ríkisstjórnin geri eitthvað, það þýðir ekkert fyrir hjónaleysin að sitja bara með hendur í skauti og vona að Dabbi bjargi málunum. Þó svo að bláa höndin hafi löngu teygt arma sína yfir Ísland þá held ég nú sé mál að linni.
Sýnir þessi frammistaða ríkisstjórnarinnar ekki bara nákvæmlega það sem gert hefur verið í tíð hennar. EKKERT! nú í vor er hjónaband sjálfstæðismanna og samfylkingar búið að vara í eitt ár. Við eigum eftir þrjú ár í þessum búskap, mér finnst ekki vænlegt að hugsa til þess hvernig staðan verður hér á landi þá. Ef við tökum mið af eldsneytishækkunum síðustu mánaða þá mun bensínlítrinn sennilega kosta um 1000 kr. það væri nú aldeilis fínt. Nei ég held að ríkisstjórnin ætti annað hvort að gera eitthvað í málunum og það strax eða sjá sóma sinn í því að stíga frá stóli.
Kæra ríkisstjórn-Leiðið ekki íslensku þjóðina til glötunar!
Fara fram á sameiginlegan fund nefnda á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kaldhæðni!
Þriðjudagur, 18. mars 2008
Skemmtilegt að þessi niðurstaða skildist birtast einmitt í dag þar sem kærasti minn eyddi þremur tímum á FSA í morgun. Þá var hann að koma í annað sinn á tveimur vikum með bólgin lið í þumal fingri, svo bólgin að hann getur alls ekki hreyft fingurinn. Hann beið fyrst í eina og hálfa klukkustund síðan var hann skoðaður og sendur í myndatöku, hann beið einhverja stund eftir henni. Þegar henni var lokið hófst klukkustundar bið eftir lækninum sem hafði skoðað hann upphaflega. Á þessum tímapunkti var hann orðinn ansi kaffiþyrstur og spurði einhverja dömu þarna hvar þau geymdu kaffikönnuna? Hún svaraði því til að kaffi væri ekki í boði, það væri eingöngu fyrir sjúklinga sem væru að koma úr aðgerð.
Þetta kalla ég mannréttindabrot og dónaskap. Að einhver sem spyr góðfúslega um kaffibolla eftir þriggja tíma bið á FSA geti ekki fengið hann nema vera lagður inn!!
Spurning hvort að þeir aðilar sem spurðir voru í þessari könnun hafi nokkurn tímann komið á FSA.
Almenn ánægja með Sjúkrahúsið á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
samkeppni??
Þriðjudagur, 11. mars 2008
Öll samkeppni er af hinu góða! Ég man það þegar ég mætti á skrifstofuna til Ollu í den til að láta mæla mig fyrir útskriftina. Olla skrifstofuskvísa sagði mér að það væri bara hægt að fá þessar húfur hjá einum aðila og þær kostuðu þá 6000 kr. sem okkur fannst dýrt. Við ræddum mikið þessa einkavæðingu og fannst þetta ekki rétt.
Ég er ánægð með þessa pilta, það gerist ekkert og breytist ekkert nema þú breytir því sjálfur. Það er bara þannig!!
Gaman er samt að sjá að gami var kotroskinn og sagði að þetta hefði verið reynt en hafði reyndar áhyggjur af því að þeir væru ekki farnir að saum húfur og útskriftirnar væru í maí. krúttlegur
Slegist um stúdentshúfur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þetta hljómar ekki vel!
Laugardagur, 8. mars 2008
Þetta hljómar ekki vel. Ég hélt að ég gerði mér grein fyrir því ástandi sem ríkir á Íslandi, en það geri ég greinilega ekki. Miðað við þessa frétt þá hljómar það ekkert alltof vel að vera að koma út úr háskóla í vor með fátt annað á bakinu en B.Ed-próf og skuldir. Eins og ég minnist á í bloggi hér á undan þá er spurning um að finna sér haldgóðan pappakassa. Þannig að þið sem eruð enn að eyða og eyða og eruð að kaupa eitthvað sem er í haldgóðum pappakössum megið endilega senda hann heim til mín.
Með fyrirfram þökk
Þórey Birna
Verst er að eiga ekkert heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Byggingafulltrúinn hefur tjáð sig
Þriðjudagur, 26. febrúar 2008
Ég lofaði að láta ykkur vita hvernig færi með svarið frá Ómari byggingarfulltrúa
Það hljóðaði svo :
Með bestu kveðju
Ómar Þröstur Björgólfsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Fljótsdalshéraðs
Svo mörg voru þau orð, segir mér ekki neitt en hann svaraði mér allavega.
Annars er það helst að frétta að ég er að fara austur að morgunn, stutt stopp. Ég á að kynna leikskólakennarafræðina í ME á fimmtudaginn og segja öllum hverslags snilldar skóli Háskólinn á Akureyri sé. Fer austur ásamt fríðu föruneyti býst ég við. Árshátíð FSHA er á laugardaginn og þemað er Óskarsverðlaunaafhendingin. Ég klikka auðvitað ekki á þemanu heldur fékk ég lánaðan rauðan síðkjól frá 1960 sem Frænka á Hjallhól átti. Ég sá einmitt að rautt var inn á Óskarnum í ár þannig að þetta er allt að gera sig.
Svo eru svona stærri tíðindin þau að fjölskyldan er að stækka. En meira um það síðar enda langt í land :)
heilsist ykkur
Þórey
p.s. bókin á náttborðinu er Karitas án titils verðugt lesefni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
hvað er að frétta?
Mánudagur, 18. febrúar 2008
Það sem brennur helst á mér þessa daganna er það að engar lóðir virðast vera til úthlutunnar í Fellabæ á Fljótsdalshéraði. Ég hef fylgst með fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar Fljótsdalshéraðs og einnig auglýsingum um lausar lóðir. Þær upplýsingar sem er að hafa um lausar lóðir í Fellabæ er: "Verið er að skipuleggja nýtt svæði í Fellabæ" þessar upplýsingar er að hafa af heimasíðu Fljótsdalshéraðs og búnar að vera eins allt síðasta ár. Gerist ekkert hjá þessari nefnd? Vonandi vinnur Skipulags- og byggingarnefnd Fljótsdalshéraðs hörðum höndum að því að vinna deiliskip fyrir Fellabæ en ég veit ekki betur en það hafi legið fyrir hjá Fellahreppi heitnum þannig að nefndarmenn þurfa ekki að finna upp hjólið! Þeir þurfa bara að finna gamla deiliskipulagið En ég sendi Ómar Byggingarfulltrúa tölvupóst í kvöld þannig að það er spennandi að vita hverju kallinn svarar.
Læt ykkur vita.
Þórey Birna - nýtt deiliskipulag strax eða að finna sér haldgóðan pappakassa til að búa í þegar ég flyst á hið margrómaða Fljótsdalshérað sem leyfir sér að nota slagorðið hvergi annarsstaðar.
Hvergi annarsstaðar - ég ætla að vona ekki!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)