Tíminn er kominn!

Nú er stundin upp runninn. Stundin sem ég hélt í janúar að myndi aldrei koma. Sú stund þegar ég væri búin að skila lokaritgerðin, ritgerðinni sem ég hélt meiripart skólagöngu minnar í HA að ég gæti ekki skrifað, það væri ekki sjéns. Sú stund þar sem ég væri búin að skila öllum verkefnum vetrarins, sem í byrjun vetrar virtust ansi mörg og flókin og sú stund þar sem ég væri búin að ljúka lokaprófum misserisins. Sú stund er sem sagt upp runnin og ég veit bara ekkert hvað ég á af mér að gera. Ég þarf reyndar að flytja í Fellabæinn um helgina og fæ stóran flutningabíl á vegum KHB-mafíunnar með olíusparnaðarbílstjórann tengdaföður minn sem einkabílstjóra einnig mun faðir minn fljóta með sem aðstoðarbílstjóri en þar sem hann er þekktur fyrir að kitla pinnan þá er honum ekki treyst fyrir því að keyra því að olían er svo dýr og hann eyðir henni svo hratt :)

Það er eins og ég segi (máltæki konu sem ég vann einu sinni með) ætli ég verði ekki að fara að pakka. Ég myndi svo sannarlega æða í það, því illu er best aflokið, nema hvað að kassarnir fjörutíu sem tengdafaðir minn sendi mér með flutningabíl í gær skruppu aðeins á Húsavík að tjékka á stemmningunni. Þess í stað sit ég í stofunni á Strandgötu 43, sennilega í síðasta skiptið og slæpist með Kjabba og Sigmari.  

 En það eru merk tímamót í lífi mínu þessa dagana, ég er búin með leikskólakennarafræði við Háskólann á Akureyri, ég er reyndar ekki búin að fá út úr prófunum en ég hef ekki fallið í Háskólanum til þessa og ætli sé nokkuð staður né stund til að fara að byrja á því núna. Þann 14. júní mun ég síðan taka við skírteininu sem staðfestir það að ég megi taka í krakka og rassskella þau (nei djók). Þetta eru sum sé merk tímamót í lífi mínu því að fyrir þremur árum þegar ég flutti í Búðarfjöru 5 og hóf nám í leikskólakennarafræðum vissi ég að þessi stund myndi renna upp ég en vissi hins vegar ekki að tíminn myndi líða eins fljótt og raun ber vitni.

 

Jæja ég er að hugsa um að hætta þessarri ferð niður braut minninganna

kveðja Þórey-ég stend á skýi/tímamótum 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Síðast sinn í stofunni á Strandgötu 43??? Ekki segja þetta...og ég sem var ekki einu sinni heima...

En það er eins og ég segi ;) það er tími breytinga að fara í hönd...

ElsaGuðný (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 22:01

2 Smámynd: Þórey Birna Jónsdóttir

iss... spurning að hætta þessari vinnu og fara að slæpast almennilega. Vinna slítur bara í sundur fyrir manni daginn

Þórey Birna Jónsdóttir, 8.5.2008 kl. 23:06

3 identicon

Hvaaaaar ertuuuuuu???

ElsaGuðný (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 23:00

4 identicon

Tek undir með þér skvís! undarlegir tímar framundan þar sem vinna frá 8-4/5 einkennir daginn, engar fleiri pásur í kjallaranum í þingó Gangi þér vel þangað til að ég sé þig næst -

kv.

Maja

Maja (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 19:20

5 identicon

Til lukku! Hlakka til að hitta þig á austurlandinu:)

Perla (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband