Engin Bræðslukreppa segir Austurglugginn
Sunnudagur, 8. júní 2008
Sú breyting hefur orðið frá upphaflegri dagskrá að hin færeyska Eivör Pálsdóttir kemur fram í stað Emilíönu Torrini. Sú síðarnefnda kemst ekki vegna anna við plötuupptöku. Emilíana kemur alltaf aftur, sagði Arngrímur, en hún spilaði á tveimur fyrstu Bræðslutónleikunum.
Aðalgestur tónleikanna verður írska söngvaskáldið Damien Rice en Magni kemur einnig fram. Miðasala fer fram í verslunum BT og á midi.is.
Að sögn Austurgluggans er þriðjungur miðanna seldur eða 333.3333333333333333 sem er 1/3 af 1000:)
Spurning um að festa sér miða. Maður hefur ekkert frétt af gæslu spurning um að kanna málið hjá nýrri stjórn Sveinunga sem hleypur sennilega eins og köttur í kringum heitan graut í von um að fá væna peningafúlgu fyrir gæslu á tónleikunum.
Biddan kveður að sinni, styttist í B.Ed-skírteinið og hálfrar aldar gamla móður
Athugasemdir
Til hamingju með hana mömmu þína þetta er mjög merkilegur áfangi.
Tala af reynslunni.
Góða skemmtun.
Jóhanna BBBBB G
Jóhanna B Guðm. (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 20:09
Innilega til hamingju með útskriftina þína.. þarna um daginn.. og með gömluna og bara allt! ;-)
Sjáumst nú vonandi bráðlega! ..man tæplega hvernig þú lítur út!!
Kveðja frá Nesk - Harpa Rún
Harpa Rún (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 08:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.